Dragonet Gurnard

Dragonet Gurnard (Fingered Dragonet)
Dactylopus dactylopus

Stærð: 30 cm

Uppruni:
Vestur-Kyrrahaf.

Um fiskinn: 
Tígullegur drekafiskur sem þarf mjög vel þroskað búr til að dafna. Nærist á smálífverum á kóralgrjóti (live-rock), og lífverurnar þurfa að vera nógu margar til að viðhalda sér, annars sveltur fiskurinn. Þarf gott vatn og felustaði. Karlfiskar hafa lengri og bera geisla í bakugga (efsta mynd) en hrygnur fyllri ugga (mið mynd). Grefur sig stundum í sandi á nóttunni eða þegar hann er hræddur. Notar lausa geislungann á eyruggunum eins og fingur til að róta í sandinum eftir æti (neðsta mynd). Er erfiður í fóðrun og aðeins fyrir lengra komna. Kviðugginn er með þéttum, fagurbláum doppum en búkurinn brúnflekkóttur. Er ekki fyllilega reef-safe sökum stærðar sinnar

Fóður: Nærist á smálífverum og þörungi. Þiggur lifandi artemíu og dafníu.

Sýrustig (pH): 8,3-4

Búrstærð: 80 l

Hitastig: 24-28°C

Verð: 5.290/5.790/6.990 kr.

Furðufuglar og fylgifiskar | Bleikargróf 15 | 108 Reykjavík | Sími : 581-1191, 699-3344, 899-5998