Flame Hawk

Flame Hawk (Scarlet Hawkfish)
Neocirrhites armatus

Stærð: 8-10 cm

Uppruni:
Vestur-Kyrrahaf, frá Ástralíu til Japans.

Um fiskinn: 
Fallegur og hlédrægur en frekar dýr fiskur. Hann þarf mjög hreint, straumhart og súrefnisríkt vatn. Yfirleitt hafðir einir í búri en í hafinu skipta karlar svæði á milli sín og eru með 2-7 kerlingar á sínum snærum. Karlfiskurinn er nokkuð stærri en hrygnan. Þessi litla, fallega kjötæta plummar sig best í reef-búri og leitar gjarnan skjóls í kóröllum af tegundinni Pocillopora og Stylophora. Þetta er ekki beint byrjandafiskur og þarf natni til að halda honum lifandi í heimabúri, aðallega vegna þess hve körfuharður hann er á vatnsgæðum. Best er að fóðra hann nokkrum sinnum á dag og helst á artemíu.

Fóður: Nærist mest á artemíu og öðru kjötmeti eins skelfiski og rækjum.

Sýrustig (pH): 8,1-4

Búrstærð: 80 l

Hitastig: 23-28°C

Verð: 10.090/11.390/12.990 kr.
 

Furðufuglar og fylgifiskar | Bleikargróf 15 | 108 Reykjavík | Sími : 581-1191, 699-3344, 899-5998