|
Gold Line Cardinal (Yellowstriped Cardinal) Apogon cyanosoma
Stærð: 8 cm
Uppruni: Indlandshaf-Kyrrahaf.
Um fiskinn: Munnklekjari og rólyndisfiskur sem kann best við sig í kyrrlátu kóralbúri. Hann unir sér vel innan um kóralla og steina á daginn en veiðir á nóttunni. Sést stundum leita skjóls í sæfíflum. Meinlaus fiskur en getur átt til að éta skrautrækjur. Er sýnilegri en margir aðrir í ættinni. Mega vera 5-7 í hópi og þá best að allir séu settir í búrið á sama tíma. Mjög harðgerður og þægilegur fiskur, og einnig litfagur.
Fóður: Lítt hrifinn af þurrfóðri en étur hvers konar lifandi fóður (artemíu, mýsisrækjur).
Sýrustig (pH): 8,3-4
Búrstærð: 140 l
Hitastig: 24°C
Verð: 2.790/3.290/3.690 kr.
|