|
Golden Moray (Goldentail Moray) Gymnothorax (Muraena) miliaris
Stærð: 70 cm
Uppruni: Atlantshaf, bæði austan og vestan.
Um fiskinn: Falleg, dökkbrún múrena með þéttar, gular doppur sem liggja nær samfellt í halanum. Auðþekktasta múrenan í Vestur-Indíum. Virk á daginn og veiðir oft með öðrum ránfiskum. Hún hentar eingöngu í ránfiskabúri með ljónafiskum, gikkfiskum, glefsum og þess konar dýrum. Þessi áll hefur gaman af að fela sig í grjóti og gægjast fram. Hann þarf gott sundpláss, góðan straum og hreint vatn. Hafa ber í huga að það getur verið erfitt að fá þessa fiska til að éta í fyrstu. Sumir geta svelt sig í nokkra mánuði og best að fóðra þá á einhverju bragðgóðu td. loðnubitum, ýsustrimlum, lifandi smáfiskum.
Fóður: Hvers konar kjötmeti, fiskistrimlar, smáfiskar.
Sýrustig (pH): 8,1-4
Búrstærð: 220 l
Hitastig: 23-27°C
Verð: 12.790/17.390/21.590 kr.
|