Goldspot Snake Eel

Goldspot Snake Eel
Myrichthys ocellatus (oculatus)

Stærð:
100 cm

Uppruni:
Atlantshaf, bæði vestan og austan.

Um fiskinn: 
Fallegur áll, sendinn á lit með dökkum skellum sem eru skærgular í miðjunni. Hentar í búri með rólegum fiskum sem hann getur ekki gleypt. Hann felur sig í botnlagi búrsins sem þarf að vera minnst 15 cm djúpt og fylgist með “umferðinni.” Búraskraut og grjót ætti að vera í lágmarki. Hafa má nokkra ála saman í búri. Þeir þurfa gott sundpláss, rólegan straum og hreint vatn. Þeir geta auðveldlega smeykt sér upp úr búrinu. Þeir eru frekar auðveldir umhirðu en hafa ber í huga að það getur verið erfitt að fá þá til að éta fyrst í stað. Sumir geta svelt sig og því best að fóðra þá á einhverju bragðgóðu svo sem loðnubitum, ýsustrimlum, lifandi smáfiskum.

Fóður: Hvers konar kjötmeti, skelfiskur, smáfiskar.

Sýrustig (pH): 8,1-4

Búrstærð: 240 l

Hitastig: 23-27°C

Verð: 11.190/13.490/18.490 kr.     

Furðufuglar og fylgifiskar | Bleikargróf 15 | 108 Reykjavík | Sími : 581-1191, 699-3344, 899-5998