Hi Fin Banded Goby

Hi Fin Banded Goby (Yellow Rose Goby)
Stonogobiops xanthorinica

Stærð: 6,5 cm

Uppruni:
Indlandshaf.

Um fiskinn:
Fallegur góbi sem er oft hafður í pörum eða stakur. Hann getur fjölgað sér í búri. Karlfiskurinn er með lengri bakugga en hrygnan (sjá neðstu mynd). Þetta er kjötæta og nærist á mysisrækjum og öðrum smálífverum og vill gjarnan fá að éta nokkrum sinnum á dag. Þarf gott búr með mörgum felustöðum og sendið botnlag. Vatnsgæði þurfa að vera góð og straumur líka. Þessi fiskur er frekar auðveldur búrafiskur.

Fóður: Artemía, mýsisrækjur, ormar, smádýr, matarleifar.

Sýrustig (pH): 8,1-4

Búrstærð: 80 l

Hitastig: 23-27°C

Verð: 4.690/5.590/6.390 kr.

Furðufuglar og fylgifiskar | Bleikargróf 15 | 108 Reykjavík | Sími : 581-1191, 699-3344, 899-5998