Hi Fin Dwarf Parrot

Hi Fin Dwarf Parrot (Filamented Flasher Wrasse)
Paracheilinus filamentosus

Stærð: 10 cm

Uppruni:
V-Kyrrahaf.

Um fiskinn:
Afar fallegur og litsterkur wrassi sem hentar vel í kórallabúri. Hængurinn sperrir uggunum fyrir framan aðra hænga og því er skemmtilegast að hafa nokkra fiska saman í búri. Best er að setja þá í búrið á sama tíma eða hrygnuna á undan hængnum. Þessir fiskar hegða sér ekki ósvipað og bardagafiskar í ferskvatnsbúri. Fiskurinn plumar sig ágætlega með rólegum búrfélögum. Hann er skær appelsínugulur með rauðum langsöm rákum og gulan tættan bakugga. Duglegur hreinsifiskur og reef-safe. Búrið þarf að vera rúmgott með nóg af felustöðum og vatnsgæði góð. Þetta er harðgerður fiskur, auðveldur og mjög litríkur sem laða fram aðra feimnari fiska.

Fóður: Hvers konar kjötmeti, mýsisrækjur, vítamínbætt artemíu til að halda litnum, gammarækjur. Fóðra minnst þrisvar á dag.

Sýrustig (pH): 8,1-4

Búrstærð: 80 l

Hitastig: 23-27°C

Verð: 5.390/6.390/7.590 kr.      

Furðufuglar og fylgifiskar | Bleikargróf 15 | 108 Reykjavík | Sími : 581-1191, 699-3344, 899-5998