Hi Fin Spangle Goby

Hi Fin Spangle Goby (Tangaroa Shrimp Goby)
Ctenogobiops tangaroai

Stærð: 6,5 cm

Uppruni:
Kyrrahaf.

Um fiskinn:
Vinsæll búragóbi sem þekkist af löngum bakugganum. Hann er hafður ýmist í pari eða stakur og getur fjölgað sér í búri. Þetta er kjötæta og nærist á mýsisrækjum og öðrum smálífverum og vill gjarnan fá að éta nokkrum sinnum á dag. Þarf gott búr með mörgum felustöðum og sendið botnlag. Hann er af rækjugóbaætt og lifir í nánu sambýli við botnrækjur. Vatnsgæði þurfa að vera góð og straumur líka. Þessi fiskur er frekar auðveldur búrafiskur og sérkennilegur að sjá.

Fóður: Artemía, mýsisrækjur, ormar, smádýr, matarleifar.

Sýrustig (pH): 8,1-4

Búrstærð: 80 l

Hitastig: 23-27°C

Verð: 4.690/5.590/6.390 kr.

Furðufuglar og fylgifiskar | Bleikargróf 15 | 108 Reykjavík | Sími : 581-1191, 699-3344, 899-5998