|
Siklíđur af ćttinni Labidochromis eru litsterkar og fallegar. Ţćr eru munnklekjarar, eins og flestar malavísiklíđur, og flokkast undir mbúnur. Flestar eru dvergsiklíđur á bilinu 7-8 cm, finnast á 1-10 m dýpi víđast hvar í Malavívatni og verja svćđi sitt af miklum eldmóđ. Bćđi kynin eru litmikil. Labidochromis siklíđur éta smávatnadýr sem ţćr plokka úr ţörungabreiđum. Tennurnar eru ýmist einodda eđa tvíodda framjaxlar og ađeins útstćđar. Tímgunin er hefđbundin fyrir malavísiklíđur og auđvelt ađ fá ţau til ađ hrygna. Hćngurinn finnur sér hrygningarstađ og grefur niđur á flatan stein. Síđan lokkar hann kerluna ađ međ miklu tilţrifum en rekur hana síđan burt ađ hrygningu lokinni. Međgangan er um 3 vikur og ađ ţví loknu sleppur hrygnan seiđunum og skiptir sér lítiđ ađ ţeim.
|
|