Neon Goby

Neon Goby (Neon Blue Goby)
Gobiosoma oceanops

Stærð: 6,5 cm

Uppruni:
Karíbahaf..

Um fiskinn:
Fallegur hreinsigóbí. Hann er tilvalinn í búri með töngum, englum og fiðrildafiskum sem hann er iðinn við að þrífa og jafnvel aðra stærri fiska (sjá neðstu mynd). Þetta er nokkuð harðger fiskur sem getur fjölgað sér í búri. Hann er hafður ýmist í pari eða stakur. Þetta er kjötæta og nærist á mýsisrækjum og öðrum smálífverum og vill gjarnan fá að éta nokkrum sinnum á dag. Þarf gott búr með mörgum felustöðum og sendið botnlag. Vatnsgæði þurfa að vera góð.

Fóður: Artemía, mýsisrækjur, ormar, smádýr, matarleifar.

Sýrustig (pH): 8,1-4

Búrstærð: 80 l

Hitastig: 23-27°C

Verð: 2.590/3.090/3.290 kr.

Furðufuglar og fylgifiskar | Bleikargróf 15 | 108 Reykjavík | Sími : 581-1191, 699-3344, 899-5998