Orange Shoulder Tang

Orange Shoulder Tang (Orangespot Tang)
Acanthurus olivaceus

Stærð: 25 cm

Uppruni:
Indlandshaf-Kyrrahaf.

Um fiskinn: 
Tígulegur og ódýr fiskur sem skipir úr gulum lit í ungviðinu (neðsta mynd) í grábrúnan lit sem fullorðinn. Þarf rólegt, þörungaríkt og stórt búr með nóg af live-rock til að marka sér svæði, gott sundrými og góða loftun. Er frekar rólegur gagnvart öðrum fiskum en getur slegist við rólegri tanga. Þarf góða hreyfingu á vatninu og nægt æti. Er nokkuð harðger og dafnar vel í stóru búri. Bestur stakur. Nærist á matarleifum og slímþörungi sem hann sýgur af botninum. Yfirleitt reef-safe og hættulaus.

Fóður: Grænmetisæta - þurrkað þang, caulpera, nori, spirúlínabætt artemía, brokkolí, kálmeti, grænar baunir og frosið fóður. Er sífellt á beit á þörungabreiðum.

Sýrustig (pH): 8,1-8,4

Búrstærð: 510 l

Hitastig: 26-28°C

Verð: 4.890/7.190/9.890 kr.

Furðufuglar og fylgifiskar | Bleikargróf 15 | 108 Reykjavík | Sími : 581-1191, 699-3344, 899-5998