|
Orange Spot Goby (Orange Diamond Goby) Valenciennea puellaris
Stærð: 15 cm
Uppruni: Við Sri-Lanka, Indlandshafi.
Um fiskinn: Einn algengasti góbinn af sinni ætt. Þekkist á appelsínugulu doppnunum. Hann er stöðugt að sía botnlagið í ætisleit og grefur og rótar mikið. Hann er harðger fiskur sem veikist sjaldan en getur soltið vegna skorts á smálífverum í botnlaginu. Þetta eru tápmiklir fiskar í kórallabúri og yfirleitt friðsamir í garð annarra fiska en ekki gagnvart fiskum af eigin tegund. Þurfa gott búr með mörgum felustöðum og sendnu botnlagi. Geta fjölgað sér í búri og eru reef-safe.
Fóður: Artemía, mýsisrækjur, smádýr, matarleifar.
Sýrustig (pH): 8,1-4
Búrstærð: 240 l
Hitastig: 22-26°C
Verð: 4.090/5.390/7.390 kr.
|