Pink Shimmering Dwarf Parrot

Pink Shimmering Dwarf Parrot (Purplelined Wrasse)
Cirrhilabrus lineatus

Stærð: 12 cm

Uppruni:
Indlandshaf-Vestur Kyrrahaf.

Um fiskinn: 
Mjög litfagur wrassi sem hentar vel í kórallabúri. Hann er alveg reef-safe og plummar sig vel með rólegum fiskum. Má hafa nokkra saman í búri þ.e. einn hæng og allt að 4 hrygnur. Tveir hængar mega ekki vera saman nema í mjög rúmgóðu búri. Getur líka verið stakur. Best er að setja fiskana í búrið á sama tíma. Hann er bleikfjólublár á búk með fjólubláum doppulínum og purpararák eftir baki. Duglegur hreinsifiskur og matfrekur. Getur verið lengi að aðlagast. Búrið þarf að vera rúmgott með nóg af felustöðum og vatnsgæði góð. Þetta er harðgerður fiskur, auðveldur og mjög litríkur sem laðar fram aðra feimnari fiska.

Fóður: Hvers konar kjötmeti, mýsisrækjur, vítamínbætt artemíu til að halda litnum, gammarækjur. Fóðra minnst þrisvar á dag.

Sýrustig (pH): 8,1-4

Búrstærð: 210 l

Hitastig: 23-27°C

Verð: 9.290/12.790/14.690 kr.      

Furðufuglar og fylgifiskar | Bleikargróf 15 | 108 Reykjavík | Sími : 581-1191, 699-3344, 899-5998