Pinkface Wrasse (Ornamented Wrasse) Halichoeres ornatissimus
Stærð: 18 cm
Uppruni: Indlandshaf-Kyrrahaf.
Um fiskinn: Fallegur lítill varafiskur sem tekur miklum útlitsbreytingum með aldrinum. Ungviðið er með sjálflýsandi grænum rákum og blett í bakugga (efsta mynd). Hrygnan er daufrauð með grænu hreistri og rákum (mið mynd) og hængurinn er rauður með túrkísgrænum dílum og rákum (neðsta mynd). Þetta er skeldýraæta og lunkin við að snúa við skeljum og grjóti í ætisleit. Fiskurinn fer vel með rólegum búrfélögum. Hann er duglegur hreinsifiskur og reef-safe. Búrið þarf að vera mjög rúmgott með nóg af felustöðum og vatnsgæði góð. Þetta er harðgerður fiskur, auðveldur og mjög litríkur en ekki reef-safe. Þarf þykkt, sendið botnlag til að dyljast í á nóttunni.
Fóður: Hvers konar kjötmeti, mýsisrækjur, vítamínbætt artemíu til að halda litnum, gammarækjur. Fóðra minnst þrisvar á dag.
Sýrustig (pH): 8,1-4
Búrstærð: 280 l
Hitastig: 23-27°C
Verð: 6.790/7.590/9.090 kr.
|