Pudding Wife Wrasse

Pudding Wife Wrasse ( Wrasse)
Halichoeres radiatus

Stærð: 51 cm

Uppruni:
V-Atlantshaf, Karíbahaf.

Um fiskinn:
Fallegur og stór wrassi sem tekur miklum útlitsbreytingum með aldrinum. Ungviðið er með tvær gular langsöm rákir og stóran svartan díl á baki og sporðrót (efstu myndir). Hængurinn verður síðan grænni með sjálflýsandi bláum rákum sem hverfa síðan (neðstu myndir). Þetta er skeldýraæta og lunkin við að snúa við skeljum og grjóti í ætisleit. Fiskurinn fer vel með rólegum búrfélögum. Hann er duglegur hreinsifiskur og reef-safe. Búrið þarf að vera mjög rúmgott með nóg af felustöðum og vatnsgæði góð. Þetta er harðgerður fiskur, auðveldur og mjög litríkur en ekki reef-safe. Þarf þykkt, sendið botnlag til að dyljast í á nóttunni.

Fóður: Hvers konar kjötmeti, mýsisrækjur, vítamínbætt artemíu til að halda litnum, gammarækjur. Fóðra minnst þrisvar á dag.

Sýrustig (pH): 8,1-4

Búrstærð: 580 l

Hitastig: 23-27°C

Verð: 3.090/5.290/6.590 kr.

Furðufuglar og fylgifiskar | Bleikargróf 15 | 108 Reykjavík | Sími : 581-1191, 699-3344, 899-5998