|
Red Banded Goby (Watchman Wheeler’s Goby) Amblyeleotris wheeleri
Stærð: 6,5 cm
Uppruni: Indlandshaf-Kyrrahaf.
Um fiskinn: Skrautlegur rækjugóbi sem lifir með byssurækju af tegundinni Alpheus ochrostriatus (sjá efstu mynd). Rækjan grefur holuna og góbinn vaktar hana og heldur ránfiskum frá. Þetta er kjötæta eins og aðrir góbar og étur af og til allan liðlangann daginn. Hann unir sér vel í sendnu búri þar sem hann getur síað sandinn í ætisleit. Best að hafa hann stakan eða í pari. Þarf gott búr með mjög hreint vatn og marga felustaði í til að dafna, og einnig gott framboð af smálífverum. Hann þekkist á sínum mörgu rauðbrúnu skáböndum og hvítgula lit, og er harðger og yfirleitt friðsamur í garð annarra fiska.
Fóður: Artemía, mýsisrækjur, smádýr, matarleifar.
Sýrustig (pH): 8,1-4
Búrstærð: 80 l
Hitastig: 22-26°C
Verð: 3.890/4.690/5.390 kr.
|