Red Head Goby

Red Head Goby
Elacatinus (Gobiosoma) puncticulatus

Stærð: 4,4 cm

Uppruni:
Mið- og A-Kyrrahaf.

Um fiskinn:
Fallegur dverggóbí úr Kyrrahafinu austanverðu td. út af Kalifornúströnd. Hann er tilvalinn í reef-búri með rólegum smáfiskum. Þetta er nokkuð harðger fiskur sem getur fjölgað sér í búri. Hann er hafður ýmist í pari eða stakur. Þetta er kjötæta og nærist á mýsisrækjum og öðrum smálífverum og vill gjarnan fá að éta nokkrum sinnum á dag. Þarf gott búr með mörgum felustöðum og sendið botnlag. Vatnsgæði þurfa að vera góð og nægt fóður.

Fóður: Artemía, mýsisrækjur, ormar, smádýr, matarleifar.

Sýrustig (pH): 8,1-4

Búrstærð: 80 l

Hitastig: 23-27°C

Verð: 2.590/2.890/3.290 kr.

Furðufuglar og fylgifiskar | Bleikargróf 15 | 108 Reykjavík | Sími : 581-1191, 699-3344, 899-5998