Seafighter Dwarf Parrot (Longfin Fairy Wrasse) Cirrhilabrus rubriventralis
Stærð: 7,5 cm
Uppruni: Indlandshaf, Rauðahaf.
Um fiskinn: Litfagur lítill wrassi sem hentar vel í kórallabúri. Hann er alveg reef-safe og plummar sig vel með rólegum fiskum. Má hafa nokkra saman í búri þ.e. einn hæng og allt að 4 hrygnur. Tveir hængar mega ekki vera saman nema í mjög rúmgóðu búri. Getur líka verið stakur. Best er að setja fiskana í búrið á sama tíma. Hængurinn er fagurrauður á bak og ljós á kvið og þekkist á skarlatsrauðu kvið- og eyruggunum. Hrygnan er einsleitari í útliti (mið mynd). Duglegur hreinsifiskur. Getur verið lengi að aðlagast. Búrið þarf að vera rúmgott með nóg af felustöðum og vatnsgæði góð. Þetta er harðgerður fiskur, auðveldur og mjög litríkur sem laðar fram aðra feimnari fiska.
Fóður: Hvers konar kjötmeti, mýsisrækjur, vítamínbætt artemíu til að halda litnum, gammarækjur. Fóðra minnst þrisvar á dag.
Sýrustig (pH): 8,1-4
Búrstærð: 120 l
Hitastig: 23-27°C
Verð: 3.690/4.890/5.590 kr.
|