|
Short Big Eye Squirrel (Popeye Catalufa) Pristigenys serrula
Stærð: 32 cm
Uppruni: A-Kyrrahaf frá Monteray til Perú.
Um fiskinn: Sérkennilegur og samanrekinn fiskur með hvöss bein í uggum og risastór augu en fagurrauður á lit. Þetta er næturfiskur sem felur sig gjarnan á daginn. Hann þarf rúmgott búr með nóg af felustöðum. Þetta er mjög harðgerður fiskur og langlífur í búrum. Sýna þarf aðgát þegar hann er veiddur og færður til því að búkbroddarnir og uggabeinin festast auðveldalega í háfi. Hann er kjötæta og étur alls kyns kjötmeti. Hann er mest á töluverðu dýpi og því frekar dýr fiskur en skemmtileg og litrík viðbót í búri.
Fóður: Hvers konar kjötmeti og botndýr.
Sýrustig (pH): 8,1-4
Búrstærð: 400 l
Hitastig: 23-27°C
Verð: 25.090/28.190/32.790 kr.
|