Striped Blenny

Striped Blenny (Lined Fang Blenny)
Meiacanthus lineatus

Stærð: 9,5 cm

Uppruni:
V-Kyrrahaf.

Um fiskinn: 
Fallegur blenni með svartar og gylltar rendur eftir búknum endilöngum. Gjarnan einfari á kóralrifum og því bestur stakur. Hefur gaman af að kíkja út úr felustaðnum sínum á gesti og gangandi. Reef safe. Hafa ber í huga að þessi blenni er í hópi höggtanna blenna og því eitraður. Hann er með tvær vígtennur í neðra gómi. Ef fiskur reynir að éta hann verst hann með því að bíta fiskinn inni í munninum. Þarf rúmgott búr með rólegum fiskum og góð vatnsgæði. Nokkuð auðveldur búrafiskur.

Fóður: Alæta. Étur lifandi fóður (artemíu, mýsis rækjur, smálífverur), þurrfóður og þörunga. Fóðra þrisvar á dag.

Sýrustig (pH): 8,1-4

Búrstærð: 80 l

Hitastig: 24-28°C

Verð: 2.590/3.290/3.890 kr.

Furðufuglar og fylgifiskar | Bleikargróf 15 | 108 Reykjavík | Sími : 581-1191, 699-3344, 899-5998