Sunspot Goby

Sunspot Goby (Spotted Shrimp Goby)
Amblyeleotris guttata

Stærð: 9 cm

Uppruni:
V-Kyrrahaf.

Um fiskinn:
Skrautlegur rækjugóbi sem lifir með nær blindri byssurækju af tegundinni Alpheus ochrostriatus. Rækjan grefur holuna og góbinn vaktar hana og heldur ránfiskum frá. Þetta er kjötæta eins og aðrir góbar og étur af og til allan liðlangann daginn. Hann unir sér vel í sendnu búri þar sem hann getur síað sandinn í ætisleit. Best að hafa hann stakan eða í pari. Þarf gott búr með mjög hreint vatn og marga felustaði í til að dafna, og einnig gott framboð af smálífverum. Hann þekkist á brúnum skáböndum, appelsínugulum blettum og svarthvítu augunum, og er harðger og yfirleitt friðsamur í garð annarra fiska.

Fóður: Vítamínbætt artemía, mýsisrækjur, smádýr, matarleifar. Fóðra tvisvar á dag.

Sýrustig (pH): 8,1-4

Búrstærð: 80 l

Hitastig: 22-26°C

Verð: 5.290/6.590/7.590 kr.

Furðufuglar og fylgifiskar | Bleikargróf 15 | 108 Reykjavík | Sími : 581-1191, 699-3344, 899-5998