|
Tassel Filefish (Leaf/Prickly Leatherjacket) Chaetodermis pencilligerus
Stærð: allt upp í 30 cm
Uppruni: Indlandshaf-Kyrrahaf.
Um fiskinn: Furðulega útlítandi fiskur alsettur skúfun eða dúskum, með ljósan búk og óreglulegar, dökkar rákir til að dulbúast. Bestur stakur eða með öðrum sambærilegum tegundum. Hann er friðsamur og þægilegur en hentar ekki með hryggleysingjum sem hann étur og nartar iðulega í. Hann hefur gaman af að fela sig í grjóti og gægjast fram. Þetta er kjötæta og étur smádýr, mýsisrækjur og artemíu. Hann þarf gott sundpláss og hreint vatn. Hafa ber í huga að það getur verið erfitt að fá þessa fiska til að éta í fyrstu og best að nota til þess artemíu, jafnvel nýklakta ef fiskurinn er smár.
Fóður: Hvers konar kjötmeti, mýsisrækjur, artemíu, gammarækjur.
Sýrustig (pH): 8,1-4
Búrstærð: 280 l
Hitastig: 23-27°C
Verð: 6.190/9.090/13.890 kr.
|