Venus Wrasse

Venus Wrasse (Elegant Coris)
Coris venusta

Stærð: 19 cm

Uppruni:
Hawaíi-eyjar.

Um fiskinn:
Fallegur lítill en dýr wrassi sem tekur miklum útlitsbreytingum með aldrinum. Ungviðið er silfurlitað með rauðbrúna rák gegnum augað (efsta mynd). Hrygnan er rauðbrún með bleikleitar rákir í andliti (mið mynd) og hængurinn er grænn með óreglulegum rauðgulum strikum (neðsta mynd). Þetta er skeldýraæta og lunkin við að snúa við skeljum og grjóti í ætisleit. Fiskurinn fer vel með rólegum búrfélögum. Hann er duglegur hreinsifiskur og reef-safe. Búrið þarf að vera mjög rúmgott með nóg af felustöðum og vatnsgæði góð. Þetta er harðgerður fiskur, auðveldur og mjög litríkur en ekki reef-safe. Þarf þykkt, sendið botnlag til að dyljast í á nóttunni.

Fóður: Hvers konar kjötmeti, mýsisrækjur, vítamínbætt artemíu til að halda litnum, gammarækjur. Fóðra minnst þrisvar á dag.

Sýrustig (pH): 8,1-4

Búrstærð: 280 l

Hitastig: 23-27°C

Verð: 12.390/15.490/18.490 kr.

Furðufuglar og fylgifiskar | Bleikargróf 15 | 108 Reykjavík | Sími : 581-1191, 699-3344, 899-5998