|
Yellow Goby (Yellow Clown/Okinawa Goby) Gobiodon okinawae
Stærð: 3,5 cm
Uppruni: V-Kyrrahaf, Okinawa.
Um fiskinn: Skemmtilegur smáfiskur en frekar felugjarn. Hann hentar vel í búri með rólegum fiskum á borð við sæhesta, pipufiska og kardínála í reef-búri. Hann getur fjölgað sér í búri og er sáttur við tilveruna ef hann fær kóral til að búa í eða undir, einkum Agropora. Þessir fiskar virðast kynlausir í byrjun og velja sér síðan kyn eftir því hver væntanlegur maki verður. Getur fjölgað sér í búri og hrygnir á greinum kóralla. Þetta er kjötæta og nærist á mysisrækjum og öðrum smálífverum. Þarf gott búr með mörgum felustöðum. Vatnsgæði þurfa að vera góð og straumur mikill. Þessi fiskur er auðveldur og harðger. Finnast oft í 5-15 fiska hópum. Reef-safe en nartar aðeins í kóralla án þess að valda varanlegum skaða.
Fóður: Artemía, mýsisrækjur, ormar, smádýr, matarleifar.
Sýrustig (pH): 8,1-4
Búrstærð: 80 l
Hitastig: 23-27°C
Verð: 1.790/2.290/2.790 kr.
|