Yellow Ray

Yellow Ray (Yellow Stingray)
Urolophus jamaicensis

Stærð: 55 cm langur og 35 cm breiður

Uppruni:
Vestur-Atlantshaf.

Um fiskinn: 
Sandlituð skata með brúnum skellum og rjómalitaðan kvið. Broddarnir eru aftar en á mörgum öðrum skötutegundum. Hefur sérstaka veiðitækni. Hún lyftir sér upp og myndar skuggsælan reit sem krabbadýr leita skjóls á og síðan grípur hún bráðina. Hún er frekar algeng á grunnsævi og þarf hreint og súrefnisríkt vatn. Skatan er eingöngu fyrir þrautreynda búraeigendur sem passa vel upp á hana. Búrið þarf að hafa sendinn botn þar sem skatan getur grafið sig niður og rótað eftir æti. Hún má ekki vera í búri með pufferum, triggerum eða öðrum árásargjörnum fiskum. Þetta er nokkuð harðger tegund - þolir samt ekki kopar í vatni og hentar ekki í kórallabúri.

Fóður: Nærist á mest á kjötmeti eins og fiski, skelfiski, rækjum og smokkfiski.

Sýrustig (pH): 8,1-4

Búrstærð: 480 l

Hitastig: 22-26°C

Verð: 12.390/15.490/19.290 kr.
 

Furðufuglar og fylgifiskar | Bleikargróf 15 | 108 Reykjavík | Sími : 581-1191, 699-3344, 899-5998