Zebra Moray

Zebra Moray
Gymnomuraena zebra

Stærð:
140 cm

Uppruni:
Indlandshaf, við Srí Lanka.

Um fiskinn: 
Sérlega fallegur áll með rjómalitaðan búk og þykkar súkkulaðilitaðar þverrákir. Þetta er með skemmtilegri múrenum og hentar vel í rúmgóðu búri með fiskum sem hún getur ekki gleypt. Hún hefur sterka jaxla til að mylja krabba og annan skelfisk. Hún hefur gaman af að fela sig í grjóti og gægjast fram og er með mjög gott þefskyn, enda með fjórar nasir. Þessi glæsilega múrena þarf gott sundpláss, góðan straum og hreint vatn. Þessir álar eru frekar hlédrægir en geta auðveldlega smeykt sér upp úr búri. Þeir eru frekar erfiðir og þarf mikla natni til að halda þeim. Hafa ber í huga að það getur verið erfitt að fá þessa fiska til að éta í fyrstu. Sumir geta svelt sig í nokkra mánuði og best að fóðra þá á einhverju bragðgóðu td. loðnubitum, ýsustrimlum, lifandi smáfiskum.

Fóður: Hvers konar kjötmeti, skelfiskur, smáfiskar.

Sýrustig (pH): 8,1-4

Búrstærð: 500 l

Hitastig: 23-27°C

Verð: 15.490/18.490/23.190 kr.     

Furðufuglar og fylgifiskar | Bleikargróf 15 | 108 Reykjavík | Sími : 581-1191, 699-3344, 899-5998