|
Bursa Trigger (Black Patch Trigger) Rhinecanthus verrucosus
Stærð: 23 cm
Uppruni: V-Kyrrahaf.
Um fiskinn: Fallegur gikkfiskur sem líkist Rhinecanthus aculeatus í útliti en er skrautminni og þekkist á stórum svörtum bletti á afturhluta kviðar. Þetta er harðgerður fiskur og mathákur. Dæling í búrinu þarf að vera öflug og vatnið súrefnisríkt þar eð gikkfiskar eru sóðar og úrgangur frá þeim mikill. Getur verið með öðrum fiskum seú þeir ekki of smáir. Lundarfar er mjög persónubundið - sumir eru vinalegir en aðrir yfirgangssamir. Eiga það til að róta í búrinu. Fínn fyrir þá sem vilja fisk sem heldur að hann sé hundur.
Fóður: Alls konar kjötmeti m.a. ígulker og krossfiskar, smokkfiskur, rækjur. Best að fóðra lítið í einu nokkrum sinnum á dag.
Sýrustig (pH): 8,2-4
Búrstærð: 210 l
Hitastig: 23-26°C
Verð: 3.290/4.290/6.590 kr
|